Símasöfnun Fjölskylduhjálpar Íslands.

 Sjálfboðaliðar Fjölskylduhjálpar Íslands eru ótrúlega duglegir að hringja í landsmenn vegna símasöfnunar sem nú stendur yfir.  Sjálfboðaliðarnir samanstanda af  yndislega góður og fórnfúsu fólki.  Sjálfboðaliðum sem eru með stór og hlý hjörtu.  Það er ekkert sjálfgefið að hafa þetta stóran hóp einstaklinga, konum og körlum á öllum aldri bæði í Reykjavík og á Reykjanesi til að halda úti jafn öflugu sjálfboðastarfi og Fjölskylduhjálp Íslands veitir í íslensku samfélagi.  Við erum öll með svipaðar hugsjónir og þess vegna gengur starfið vel.  Nú er  hringt frá starfstöð okkar í Eskihlíðinni í Reykjavík þar sem unnið er á vöktum alla daga. Fjölskylduhjálp Íslands er að hefja níunda starfsár sitt.  Mikið er tíminn fljótur að líða.  Nú þurfa landsmenn að sýna samkennd og samhjálp í verki því allt of margir búa við erfiðan efnahag nú um stundir á Íslandi.  Viðtreystum alfarið á fyrirtækin og einstaklingana í landinu.  Hjálpið okkar að hjálpa öðrum.


Hvers vegna eru úttektarkort í matvöruverslanir ekki í boði hjá Fjölskylduhjálp Íslands?

Landsmenn velta þessu mikið fyrir sér og spurningum um þetta fáum við oft í hverri viku.

Markmið samtakanna er að hjálpa af kærleik og hugsjón flesum sem eru í neyð.  Við treystum á einstaklinga og fyrirtækin í landinu sem styðja okkur með matvælum,  fjármunum og fatnaði.  Við verðum að fara vel með hverja einustu krónu sem inn á ráðstöfunarreikninginn kemur.  Síðustu tólf mánuði úthlutuðum við  yfir 24 þúsund matarúthlutunum og til að geta gert það koma úttektarkort ekki til greina. Með notkun úttektarkorta gætum við aðeins hjálpað 10 % þeirra sem leita til okkar.  Hvað eigum við að gera fyrir hinar 90 % fjölskyldna sem enga aðstoð fá?   Hér tek ég dæmi um einn úthutunnardag.  Við úthlutum til 1140 fjölskyldna.  Ef þessar fjölskyldur fengju hver um sig  10.000 króna úttektarkort kostaði þessi eini dagur samtökin 11.4 00.000 króna, já 11.4 milljónir króna.  Fyrir þá upphæð getum við keypt matvörur  fyrir  heila þrjá mánuði og aðstoðað yfir 11 þúsund fjölskyldur, já þú last rétt, kæri lesandi, 11 þúsund fjölskyldur.  Auðvitað er það miklu þægilegra að úthluta úttektarkortum, sleppa við allt erfiðið sem fylgir því að úthluta matvörum, losna við allan undirbúninginn, allan burðinn og skipulagið og þurfa aðeins að sinna viðtölum við skjólstæðinga. Hjálparstarf snýst ekki um þægindi heldur snör handtök, stuttar boðleiðir og mikla afkastagetu.  Við getum ekki leyft okkur slíkt, því peningarnir eru ekki til og okkur ber að gera eins mikið úr hverri krónu og mögulegt er og að hjálpa sem flestum heimilum sem búa við allt of þröngan kost og munu búa við slíkt ástand næstu misserin.  Þið sem eruð aflögufær þá er  söfnunarreikningur Fjölskylduhjálpar Íslands  546-26-6609, kt. 660903-2590.  Jólahátíðin er á næsta leiti.


Kyrrstöðusamninga líka fyrir okkur hin.

Bankarnir verða að láta jafnt yfir alla viðskiptavini sína ganga. Ég bið lánadrottna um kyrrstöðusamninga til handa þeim sem eru nú að missa heimilin sín á nauðungasölum á næstu vikum og mánuðum.

Góðar fréttir frá Indlandi.

Mikið er það dásamlegt að búið sé að opna sendiráð INDVERJA hér á landi.  Ég er mikill aðdáandi Indlands.  Vona að Íslendingar ferðist í meira mæli til Indlands, lands sem býr yfir hlýju og yndislegheitum, fólki sem er svo ljúft og gestrisið.  Vona að ég geti ferðast sem fyrst aftur til Indlands.
mbl.is Opnaði sendiráð Indlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER ÖLLUM SAMA UM ÞÁ FJÖLMÖRGU SEM BÚA VIÐ FÁTÆKT HÉR Á LANDI ? VETUR ER Í NÁND.

Þarf að finna raunhæfa lausn í ákveðnu máli. 

Fjölskylduhjálp Íslands þarf mun stærra húsnæði fyrir starfsemina til að þeir sem til okkar leita líði vel og þurfi ekki að standa úti í biðröðum. Þurfum húsnæði þar sem fólk getur beðið inni í hlýjunni og fengið sér kaffi, leikhorn fyrir börnin. Húsnæði þar sem fólk fer inn á einum stað og út á öðrum. Húsnæði með salernisaðstöðu fyrir okkar gesti, húsnæði með aðgengi fyrir fatlaða og svo margt, margt fleira. Þetta er mitt vandamál. Er búin að tala við Jón Gnarr borgarstjóra en ekkert gengur. Er ráðþrota.  Er öllum sama um þá fjölmörgu sem búa við fátækt hér á landi? VETUR ER Í NÁND.


Svona eru bæjarstjórar valdir

Ég var ein af þeim 55 sem sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík.  Ég tel mig hafa mikla reynslu  í atvinnulífinu og góða  menntun en var samt ekki kölluð í viðtal.  Óska eftir að ferlið verði skoðað, var rétt að öllu staðið?
mbl.is Nýr bæjarstjóri í Grindavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

100 krónu söfnun Fjölskylduhjálpar Íslands

Við erum með 100 krónu söfun á heimasíðu okkar sem allir geta tekið þátt í.  Allar upplýsingar eru á heimasíðu okkar fjolskylduhjalpin.net 

Missir Fjölskylduhjálp Íslands húsnæðið 1. september n.k.?

Missir Fjölskylduhjálp Íslands húsnæðið 1. september
n.k. í Eskihlíðinni?  Hvað gerum við þá? Neyðumst við, til að horfa fram hjá þeirri gríðarlegu útbreiddu fátækt  sem er á Íslandi?

530 fjölskyldur fengu matarúthlutun hjá Fjölskylduhjálp Íslands í dag

það var yndisleg tilfinning þegar við lokuðum í dag klukkan 16.30 og höfðum á þeim tímapunkti hjálpað 530 fjölskyldum með mataraðstoð.  Hjá mörgum þessara fjölskyldna er hópur barna sem þarf að horfa upp á báða foreldra sína án atvinnu sem upplifa mikla örvæntingu á hverjum degi.  Hvaða áhrif hefur þetta á blessuð börnin?

Þurfum nýja sýn

Skýrslan er komin. Nú þurfum við íslendingar nýja sýn á umhverfið. Hver ætti sú sýn vera?  Það getur ekki talist eðlilegt að þegar einstaklingar koma út úr skólakerfinu og ráða sig í störf innan stjórnsýslunnar að þeir starfi þar alla sína starfsævi.  Slíkt fyrirkomulag er ávísun á spillingu. Ef ríkisstjórnin meinar það sem hún segir varðandi hreinsanir innan stjórnkerfisins eru eftirfarandi  byrjunarskref í áttina að því.  

1.        þingmenn sem sitja á Alþingi íslandinga í dag og tengjast  efnahagshruninu og eða eru kúlulánþegar  segi  af sér þingmennsku og varamenn taki við.    

2.       Setja ætti í lög um  að kjörnir þingmenn geti lengst setið á þingi í tvö kjörtímabil í senn og færu þá til  starfa innan einkageirans. 

3.       Eftir  fjögur ár í störfum hjá einkageiranum gætu þeir( fyrrum þingmenn) boðið sig fram aftur ef þeir kjósa svo.

4.       Setja þarf ný lög um embættismenn og stjórnendur innan stjórnkerfisins.

5.        Embættismenn og stjórnendur innan stjórnkerfisins verði ráðnir til fimm ára  og fari síðan út í einkageirann og starfi þar næstu fimm árin.  Eftir þann tíma geta þeir sótt um störf innan stjórnsýslunnar ef áhugi er fyrir hendi.

 

 Breytingar sem þessar gætu komið að einhverju leiti í veg fyrir áframhaldandi  spillingu  sem ríkt hefur hér á landi og ekki sér fyrir endann á.

 

Tilmæli til stjórnmálaflokkanna.  Takið ykkur tak og skiptið út fólki og hleypið nýju blóði að.


Næsta síða »

Um bloggið

Samfélagið og við

Höfundur

Ásgerður Jóna Flosadóttir
Ásgerður Jóna Flosadóttir

          MBA viðskiptafræði, BA stjórnmálafræði og fjölmiðlafræði.  Er starfandi formaður Fjölskylduhjálpar Ísland

Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • Fjölsk mars 2008 008
  • Fjölsk mars 2008 005
  • PhotoImpression
  • Mars2008 019
  • Mars2008 019

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 69657

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband