Icesave ekki inn í myndinni fyrr en

Íslendingar munu ekki hugleiða það að samþykkja Icesave fyrr en búið er að ná til baka öllum þeim fjármunum sem útrásarvíkingarnir tóku ófrjálsri hendi úr íslensku þjóðarbúi.  Yfirvöld takið ykkur tak.

Hvað hafa Björgólfarnir á stjórnmálastéttina?

Það er með ólíkindum hvað Björgólfarnir ætla að ganga langt.  Svarið við ósk þeirra átti að vera strax NEI frá Kaupþingi.  Menn eru að velta því fyrir sér hvort eigi að verða við óskum þeirra eða ekki.  Eru menn að tapa vitinu í þessu landi.  Hvað hafa Björgólfarnir á banka og stjórnmálastéttina? Þjóðin krefst svara. 

Maður reytir hár sitt af reiði.

Það liggur við að maður missi meðvitund við það eitt að horfa á fréttirnar.  Maður hugsar:  Vantar allt vit í okkur íslendinga?  Það er verið að dæla hundruðum milljarða hingað og þangað til að redda fyrirtækjum sem í raun ættu að fara í gjaldþrot og reisa ný upp frá grunni.  Skuldugir íbúðareigendur mega sitja heima í taugahrúgu, með magakrampa, geta hvergi sig hreift, allt upp í lofti, sambúðarfólk ákveður að skilja, splundra heimilinu, skítt með blessuð börnin sem fara mjög illa út úr þessu ástandi, bara að redda fyrirtækjunum.  Við þetta venjulega fólk verðum í skuldafjötrum næstu áratugina. Það er í lagi að afskrifa hundruð milljarða en ekki má setja túkall í að hjálpa skuldugum heimilum þessa lands.  Hvenær ætlum við að rísa upp og mótmæla.  Við þurfum gott og heiðarlegt fólk inn á Alþingi íslendinga, fólk sem hugsar um heildina en ekki útvalda hópa.  Hvenær mun þjóðin upplifa slíkt?


Er ljómi Sigfússona að dofna?

Það vekur athygli að Sigfússynirnir þrír hjá Sjóvá, Eimskip og Reykjanesbæ eru tíðir gestir á síðum blaðanna í tengslum við fjármagn og völd.  Er ljómi hinna íslensku Kennedyja að fölna?
mbl.is Húsleit hjá Samtökum atvinnulífsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Köllum til slökkviliðið þegar húsið er brunnið til grunna.

Bréfatætara hafa líklega verið í gangi  í langan tíma hjá öllum þeim sem komu nálægt og eða ollu hruninu. Sorglegt að fylgjast með vinnubrögðum rannsóknaraðila.
mbl.is Húsleit á níu stöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hreinsið út úr bönkunum

Hvernig væri nú að hreinsa út alla þá er tengjast bankahruninu, fækka starfsfólki og draga alla starfsemina saman áður en fleiri milljörðum er hent í þessa hít.  Þetta eru peningar almennings.
mbl.is 280 milljarðar í nýju bankana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sendiráð óskar eftir rólegri íbúð

Finnska sendiráðið á Íslandi óskar eftir rólegri íbúð í sunnudagsútgáfu Morgunblaðsins.  Ekki vissi ég að til væru rólegar íbúðir, eða kátar og veikar íbúðir eða þá þunglyndar íbúðir.  Eitthvað hefur skolast til hjá vinum okkar finnum.

Sorry Hannes

Hannes heldur að en sé árið 2007 og allir dofnir.  Nei Hannes, íslendingar eru vaknaðir sem betur fer.
mbl.is Húsleitir í máli Hannesar lögmætar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofvaxið ríkisbatterí

Ég hef nú meiri áhyggjur af hinni gríðarlegu útþenslu í ríkisgeiranum.  Má ekki sameina stofnanir og fækka þar með stjórunum.  Ríkisbatteríið er orðið að skrímsli í okkar þjóðfélagi.
mbl.is Fáar konur í hópi stjórnenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Samfélagið og við

Höfundur

Ásgerður Jóna Flosadóttir
Ásgerður Jóna Flosadóttir

          MBA viðskiptafræði, BA stjórnmálafræði og fjölmiðlafræði.  Er starfandi formaður Fjölskylduhjálpar Ísland

Júlí 2009
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Fjölsk mars 2008 008
  • Fjölsk mars 2008 005
  • PhotoImpression
  • Mars2008 019
  • Mars2008 019

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.10.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband