Kæri Davíð Oddsson, hvað með okkur hin? Taktu nú af skarið.

Kæri Davíð Oddsson, þú sem getur allt.  Sýndu nú en og aftur stjórnunarsnilli þína og bjargaður öllum þeim  sem eru nú með myntkörfulánin.  Margir eru að missa íbúðir sínar vegna gengisfalls krónunnar. Búið er að dæma marga út af húsnæðismarkaðnum. Gerður ráðstafanir, því ekki gerir ríkisstjórnin það.  Þjóðin yrði þér afar þakklát.  Það voru bankarnir sem hvöttu landsmenn í myntkörfulánin.

Þetta er í mikilli andstöðu við mig ?????????????????

Já, það er nefnilega það, það kom honum verulega á óvart og hann hefur ekki samþykkt að verða varaformaður þingflokksins.  Þetta er í mikilli andstöðu við mig segir Kristinn fyrrverandi þingflokksformaður Frjálslynda flokksins.  Hvað halda sumir menn að þeir séu??????????

Jón Magnússon verður frábær þingflokksformaður og mun styðja þétt við bakið á Guðjóni Arnari formanni.

Bjartir tímar hjá Frjálslynda flokknum.


mbl.is Kristinn undrast ákvörðun formannsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þurfum erlenda efnahags sérfræðiráðgjöf

Fólk er miður sín yfir þeim fréttum sem berast daglega frá yfirvöldum og fjármálageirum á Íslandi.  Oft höfum við vinahópurinn talað um að Ísland þurfi á erlendum efnahagsráðgjöfum að halda því okkar menn eru ekki færir um að ráða fram úr hinum gríðarlega vanda sem íslenskt þjóðfélag stendur frammi fyrir.  Vonandi munu stjórnvöld fara eftir tilmælum Ólafs Ísleifssonar hagfræðings og lektor við Háskólann í Reykjavík sem fram komu í Fréttablaðinu 6. september s.l. þess efnis að Seðlabankinn leiti eftir sérfræðiráðgjöf erlendra aðila á borð við  Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.

Með von um að stjórnvöld sjái ljósið.


Ríkisstjórnin segi af sér og það strax.

Ríkistjórnin ber að fara frá völdum.  Þessi stjórn er að gera leggja heimilin í landinu í rúst.  Ráðherrar horfa úr glerhúsi sínu yfir lýðinn sem berst nú í bökkum við að halda húsnæði sínu.  Kreppan snertir þá ekki, þeir eru í áskrift á launum sínum næstu 3 árin.  Þjóðin er komin á kaldan klaka vegna efnahagslegrar óstjórnar í landinu.  Heimilin eru að blæða út.  Hvað eru þessir menn að hugsa?  Lánin hafa hækkað um 30% og fólk veit ekki sitt rjúkandi ráð. 

Um bloggið

Samfélagið og við

Höfundur

Ásgerður Jóna Flosadóttir
Ásgerður Jóna Flosadóttir

          MBA viðskiptafræði, BA stjórnmálafræði og fjölmiðlafræði.  Er starfandi formaður Fjölskylduhjálpar Ísland

Sept. 2008
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Fjölsk mars 2008 008
  • Fjölsk mars 2008 005
  • PhotoImpression
  • Mars2008 019
  • Mars2008 019

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.10.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 72644

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband