27.5.2008 | 12:56
Áskorun til forseta lýðveldisins
Við konur í Frjálslynda flokknum skorum hér með á herra Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands að neita að undirrita lagafrumvarp um breytingu á lögum um tekjuskatt þar sem meirihluti Alþingis gaf eftir skatta vegna söluhagnaðar lögaðila með afturvirkum hætti. Með því að neita að staðfesta lögin gefst þjóðinni tækifæri til að kjósa um frambúðargildi laganna. Lagabreytingin brýtur í bága við almennu jafnræðisregluna í stjórnarskrá lýðveldisins þar sem felldir eru niður skattar fyrir ákveðinn hóp auðmanna en slík niðurfelling er fordæmislaus í sögu islensku þjóðarinnar. Forsetinn hefur áður neitað að staðfesta meirihlutavilja þingsins og svarið eið að virða stjórnarskrá lýðveldisins. Forsetanum ber að virða stjórnarskrána og vilja þjóðarinnar og ganga í berhögg við gerræðisleg vinnubrögð ríkisstjórnarinnar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Samfélagið og við
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Flott Ásgerður.
kv.gmaria.
Guðrún María Óskarsdóttir., 28.5.2008 kl. 00:06
Mér er nú ekkert um að láta skora á forseta fyrir mig og lesa það svo í Mogganum. Hefði ekki verið heppilegra að skilgreina þetta betur.
Rannveig H, 28.5.2008 kl. 16:19
Sæl Rannveig, við vorum ekki með neina áskorun fyrir þína hönd, svo sannarlega ekki, en fréttatilkynningin sem send var á fjölmiðla var í nafni Landssambands kvenna í Frjálslynda flokknum og engra annarra. Hvernig fjölmiðlar útfæra síðan fréttina er þeirra mál, ekki okkar.
Eigðu góðan dag.
kkv.
Ásgerður Jóna Flosadóttir, 28.5.2008 kl. 17:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.