7.9.2008 | 18:01
Þurfum erlenda efnahags sérfræðiráðgjöf
Fólk er miður sín yfir þeim fréttum sem berast daglega frá yfirvöldum og fjármálageirum á Íslandi. Oft höfum við vinahópurinn talað um að Ísland þurfi á erlendum efnahagsráðgjöfum að halda því okkar menn eru ekki færir um að ráða fram úr hinum gríðarlega vanda sem íslenskt þjóðfélag stendur frammi fyrir. Vonandi munu stjórnvöld fara eftir tilmælum Ólafs Ísleifssonar hagfræðings og lektor við Háskólann í Reykjavík sem fram komu í Fréttablaðinu 6. september s.l. þess efnis að Seðlabankinn leiti eftir sérfræðiráðgjöf erlendra aðila á borð við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Með von um að stjórnvöld sjái ljósið.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Samfélagið og við
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sammála. Og ég vil bæta við að þeir mættu alveg taka mark á ráðgjöfinni og fara eftir henni til tilbreytingar.
Sigurður Þórðarson, 11.9.2008 kl. 12:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.