Yfir 800 fjölskyldur munu fá jólaaðstoð hjá Fjölskylduhjálp Íslands fyrir þessi jól. Fjölskylduhjálp Íslands hefur aðeins örfáar milljónir úr að spila yfir allt árið. Það hefur verið yndislegt að upplifa hvað þjóðin stendur á bak við starfið. Fyrirtækin í landinu hafa stutt vel við bakið á okkur í viðleitni sjálfboðaliða við að létta undir með íslenskum fjölskyldum sem búa við kröpp kjör. Fyrir hver jól hafa nokkrir þingmenn komið að starfinu með því að hjálpa til við jólaúthlutun Fjölskylduhjálpar Íslands. Viljum við sérstaklega þakka DV fyrir góðan stuðning og ber blaðið af öllum fjölmiðlum í landinu fyrir stuðninginn. Í dag er síðasti úthlutunardagur fyrir jólaaðstoð og erum við vel í stakk búnar og munu allir þeir sem fá sína jólaaðstoð fara frá okkur með bros á vör. Hjá Fjölskylduhjálp Íslands er úthlutað alla miðvikudaga allt árið vikulegri mataraðstoð til hundruða fjölskyldna. Þeir sem vilja styðja starfið er bent á bankareikning FÍ sem er 101-26-66090 Kt. 660903-2590.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Samfélagið og við
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæl Ásgerður.
Því hefur fylgt mikil og góð tilfinning að aðstoða við starf sem þetta nú rúmt ár, og nú upp á síðkastið að finna þann mikla velvilja sem einstaklingar og fyrirtæki hafa sýnt starfinu með því að leggja sitt af mörkum.
Því skyldi hins vegar haldið til haga að, að þú sjálf átt heiður skilinn ásamt þeim dugsömu konum sem haldið hafa utan um þetta starf, við þröngan húsakost og lítil efni, þar sem hver einasta króna hefur haldið verðgildi sínu og vel það.
kv.gmaria.
Guðrún María Óskarsdóttir., 20.12.2008 kl. 00:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.