Erlendir blaðamenn forvitnast um fátækt á Íslandi

Það er ýmislegt sem rekur á fjörur okkar hjá Fjölskylduhjálp Íslands.  Finnskur blaðurmaður á við mig langt viðtal um fátæktina á Íslandi í síðustu viku.  Hann var hér fyrir hönd blaðs í magasín stíl og er gefið út í milljóna eintaka á öllum Norðurlöndunum.   Í dag liggur fyrir að ég mæti í blaðaviðtal hjá blaðamönnum frá japönsku stóru fréttablaði þar í landi.  Mér skilst að ég muni eiga mörg slík blaðviðtöl í vændum þar sem erlendir blaða og fréttamenn vilja fá fréttir af fátækt á Íslandi.

Hvaðan komu eignir Pálma og Jóhannesar í fons?

Hafa menn velt því fyrir sér hvaðan fjármunir komu og hvernig Pálmi og Jóhannes í fons urðu efnaðir.  Góð spurning ekki satt.   Hvernig væri nú að menn færu í að athuga þau mál.

Pálmi og Co þjóðinni til skammar

Þessi framkoma Páma og Jóhannesar í fons er fyrirlitleg og okkur íslendingum til mikilla skammar í Danmörku.  Þetta er nú hið íslenska viðskiptasiðferði.  Það fer hrollur um mig.  Þessir aðilar eiga miklar eignir og því á að ganga að þeim að fullri hörki.  Launakröfur eiga ekki að lenda á danska ríkinu.  Svei þeim.


mbl.is Farþegum neitað um endurgreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styðjum DV og Útvarp Sögu

Í dag þurfum við að búa við ákveðna þöggun hjá mörgum fjölmiðlum á Íslandi.  Aðgangur fólks með ákveðin málefni hafa lítil tækifæri á að koma máli sínu á framfæri.  Staðan á íslenskum fjölmiðlamarkaði er graf alvarlegur.  Eignarhald sumra fjölmiðla er mjög óljós svo ekki sé meira sagt.  Útvarp Saga og DV eru fjölmiðlar sem fjalla um öll mál  óháð hverjir eiga hlut að máli.  Nú er mikilvægt að landsmenn gerist áskrifendur að DV og styðji Útvarp Sögu með fjárframlögum.  Lýðræði þjóðarinnar er að veði.

Kæri biskup, nú hryggir þú mig

Það hryggir mitt  hjarta að heyra það að Biskupinn yfir Íslandi líti á hið erfið árferði hér á landi  með þeim augum sem hann gerir.  Hann virðist ekki gera sér grein fyrir þeim hörmungum sem eiga eftir að dynja yfir íslenska þjóð.  Nú standa þúsundir fjölskyldna frammi fyrir því að missa húsnæði sitt og atvinnu.  Hvað með börnin í þessum fjölskyldum?  Þau verða svo sannarlega fyrir barðinu á ástandinu.  Fjölskyldur flosna upp, hjónabönd splundrast og mun það koma hart niður á börnum þessa lands.  Nú þurfum við að rækta okkar eigin garð til að geta hjálpað fátækum börnum í útlöndum.
mbl.is Aldrei verið auðugri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingmaðurinn er óhæfur

Birgir Ármannsson formaður allsherarnefndar býr ekki í sama samfélagi og við hin hér á Íslandi.  Hvað gengur honum til?
mbl.is Vill ekki frysta eignir auðmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var mikið.

Það má ekki bíða lengur með að fá erlenda sérfræðinga til að rannsaka hvað fór úrskeiðis hér á landi.  Hvað hafa stjórnmálamenn að fela?  Þessi spurning er á vörum þjóðarinnar í dag.
mbl.is Vill óháða erlenda úttekt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetanum er vorkunn.

Gleymum ekki að Forseti Íslands og frú hafa ferðast með einkaþotum útrásarvíkinganna víða um heim og hrósað þeim fyrir frábæra framtakssemi í frumkvæði og athafnasemi.  Hvað segir þetta okkur um forsteta vor sem ætlar nú að heimsækja landsbyggðir og fyrirtæki landsins til að peppa fólk áfram í lífsins baráttu.  Það er margt skrítið í kýrhausnum kæru landar. OMG. Erum við á tuttugustu og fyrstu öldinni sem forseta vor er tíðrætt um.
mbl.is Forsetinn hvetur til samstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðskiptaráðherra ber að bjóða út lánin í Baugi á alþjóðamarkaði.

Ég tel rétt eins og fram hefur komið í fréttum að nokkrir séu á eftir lánunum í Baugi, að þessi lán verði boðin út á alþjóðamarkaði og reynt að fá sem mest fyrir þau.  Annað er óskynsamlegt.  Hafa verður hagsmuni þjóðarinnar í huga þar sem þúsundir íslendinga mun missa vinnuna á næstu mánuðum og misserum.  Það eru ekki bara Bretar sem missa vinnuna.
mbl.is Jón Ásgeir: Fær ekkert út úr sölunni á Baugsfyrirtækjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Samfélagið og við

Höfundur

Ásgerður Jóna Flosadóttir
Ásgerður Jóna Flosadóttir

          MBA viðskiptafræði, BA stjórnmálafræði og fjölmiðlafræði.  Er starfandi formaður Fjölskylduhjálpar Ísland

Okt. 2008
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Fjölsk mars 2008 008
  • Fjölsk mars 2008 005
  • PhotoImpression
  • Mars2008 019
  • Mars2008 019

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.10.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 72644

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband