21.2.2009 | 18:43
þóra Kristín, blaðamaður ársins, til hamingju.
![]() |
Þóra Kristín blaðamaður ársins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.2.2009 | 19:04
Lítið mál fyrir sjálfstæðismenn að skipta öllum út í Reykjavík
Það er líf og fjör í Sjálfstæðisflokknum. 29 gefa kost á sér í prófkjörum flokksins í Reykjavík. Nú er lítið mál fyrir kjósendur flokksins að skipta öllum út því nægt er framboðið.
![]() |
Geir gefur ekki kost á sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.2.2009 | 13:49
Ég þakka Guði fyrir allt þetta góða fólk.
Hvert stefnir Ísland? Hverjir eru framtíðar möguleikar okkar sem búum hér á landi? Við þessu eru engin svör. Við bíðum milli vonar og ótta og getum okkur ekki hreift. Þetta er eins og versta martröð. Hvernig gátu ákveðnir peninga gráðugir einstaklingar gert þjóð sinn þetta? Það er óskiljanlegt.
Sem sjálfboðaliði hjá Fjölskylduhjálp Íslands horfir maður fram á svarta framtíð. Á miðvikudaginn var sóttu 197 fjölskyldur um mataraðstoð og það margfaldað með 2.5 þá hafa það verið 742 einstaklingar sem nutu úthlutunar þann daginn.
Fjöldi nýrra andlita, fólk sem ætíð hefur séð fyrir sér og sínum, en nú getur það ekki lengur. Fólk með brostnar vonir, fólk sem er örvæntingarfullt og skilur ekki hvað hafi komið fyrir litla góða Ísland.
Þennan dag fékk hver fjölskylda fjóra fulla haldapoka af matvælum. Það var yndislegt að geta úthlutað nýjum fiski, kjötfarsi og folaldakjöti til allra auk mjólkurvara, brauði, kartöflum, rófum, eggjum og góðum pakkasúpum. Allir fóru glaðir frá borði. Þegar við héldum heim kl. 18.00 eftir erfiðan dag var nánast allt búið og matarbúrið tómt.
Ég hef það á minni könnu að sjá til þess að matarbúrið sé fullt fyrir hvern miðvikudag og það er ekki laust við að maður sé stundum með kvíðahnút í maganum þegar hver miðvikudagur rennur upp. Nokkur tonn af matvælum verða að vera komin í hús fyrir þann dag.
Með mér starfar yndislegur 20 til 25 manna hópur sem deilir sömu hugsjón og ég. Þetta dásamlega fólk mætir hvern miðvikudag kl. 12.00 og stendur vaktina til kl. 18.00. Ég þakka Guði fyrir allt þetta góða fólk sem gefur vinnu sína ár eftir ár í þágu þeirra sem minna mega sín.
Mikill ágangur hefur verið frá erlendum fjölmiðlum sem óska eftir viðtölum við mig vegna efnahagshrunsins og hef ég reynt að mæta þeim óskum. Það er tímafrekt að fara í þessi viðtöl og eru viðtölin orðin yfir 20 talsins við sjónvarps og útvarpsstöðvar auk blaða og tímaritaviðtala síðustu þrjá mánuðina.
15.2.2009 | 14:09
Hvers vegna Stykkishólmur?
Opið bréf til Guðjóns Arnars Krisjánssonar formanns Frjálslynda flokksins.Frjálslyndi flokkurinn átti 10 ára afmæli s.l. haust. Flokkurinn fékk tvo menn á þing fyrir 10 árum og árið 2003 og 2007 fjóra þingmenn kjörna. Samt sem áður er flokkurinn í dag með 1.5% fylgi í könnunum. Hvernig má það vera spyrja margir? Stefnuskrá flokksins er framsækin fyrir land og þjóð
- Frjálslyndi flokkurinn vill standa vörð um frelsi einstaklingsins, lýðræði og mannréttindi.
- Frjálslyndi fllokkurinn vill kvótann aftur til þjóðarinnar.
- Frjálslyndi fllokkurinn vill gera landið að einu kjördæmi.
- Frjálslyndi flokkurinn vill afnema verðtrygginguna.
- Frjálslyndi flokkurinn vill standa vörð um íslenskan landbúnað.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
15.2.2009 | 13:51
Ég ann landsbyggðinni frá mínum innstu hjartarótum
Sæll Ingólfur Ásgeir, er ekki allt í góðum gír hjá Íslandshreyfingunni? Mér þykir ákaflega vænt um landsbyggðina enda snýst þetta ekkert um það eins og þú veist mæta vel. Til að upplýsa þig þá er ég ættuð frá Fáskrúðsfirði í föður ætt og frá Lýsudal í Staðarsveit á Snæfellsnesi í móður ætt. Hér snýst málið um lýðræði. Það væri ákaflega gaman að halda landsþing í Stykkishólmi sem er yndislegur staður sem ég þekki mæta vel, en ekki á kosningaári. Svo einfalt er það.
![]() |
Gagnrýna flokksforystuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.2.2009 | 16:12
Ef grunsemdir vakna, hvað meina ráðherrarnir?
![]() |
Fjármálaefirlitið skoði málið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.2.2009 | 14:15
Nú verður tekið á málunum
![]() |
Íhuga rannsókn á bankahruni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.2.2009 | 12:59
Prófkjör Frjálslynda flokksins í Reykjavík?
3.2.2009 | 21:46
Landsþing Frjálslynda flokksins í Reykjavík ???
![]() |
Vilja í forystu Frjálslynda flokksins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.2.2009 | 21:19
Í Frjálslynda flokkinn og taka þátt í landsþinginu í mars.
Bjóða sig fram til forystu í Frjálslynda flokknum
Guðrún María Óskarsdóttir og Ásgerður Jóna Flosadóttir bjóða sig fram til forystu í Frjálslynda flokknum á komandi landsþingi flokksins 13. til 15. mars.
Guðrún María er skólaliði og aðstoðarmaður Grétars M. Jónssonar býður sig fram til formanns og Ásgerður Jóna, stjórnmálafræðingur og formaður Fjölskylduhjálpar Íslands, til varaformanns.
Við erum valkostur fyrir flokksmenn til umbreytinga og nýrrar sóknar þar sem Frjálslyndi flokkurinn hefur í sinni stefnumótun allt það sem þarf til að byggja nýtt Ísland. Réttlæti í orði, sé réttæti á borði, og ljós mannúðar og sanngirni verði vegvísir til framtíðar," segir í sameiginlegri tilkynningu.
Um bloggið
Samfélagið og við
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar