Nú líst mér vel á Geir.

Gott hjá Geir að herða viðurlög við brotum sem FME og SME komast á snoðir um.   Slíkar aðgerðir þurfa að vera afturvirkar. Nú líst mér vel á Geir.
mbl.is Geir: Herða beri viðurlög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir, frystu allar eigur útrásarfurstanna.

Þá er enn einn blaðamannafundurinn haldinn í dag.  Það væri óskandi að Geir tilkynnti þjóðinni að hann væri búinn að frysta eigur útrásarfurstanna og að Ísland færi í umsjá IMF tímabundið.
mbl.is Geir með blaðamannafund síðdegis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikilvægt fyrir þjóðina að fá aðstoð frá IMF

Ég styð Vilhjálm Egilsson í að mikilvægt sé að fá aðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.  Það má ekki bíða, því eftir því sem ráðamenn draga það að taka ákvörðun, því verra verður ástandið.  Íslenska stjórnkerfið þarf á uppskurði að halda.  Eftir þann uppskurð munum við þjóðfélagsþegnarnir upplifa nýtt og heilbrigðara þjóðfélag.  Eigum að fara í gjörgæslu hjá IMF.  Hvað hræðir stjórnmála og embættismenn? 
mbl.is Baksvið: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn - með góðu eða illu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaupþing gjaldþrota í Bretlandi, en samt á að bjarga þeim hér á Íslandi

Ég velti efnahagsástandinu mikið fyrir mér og þá sérstaklega s.l. þrjú ár.  Í mínum vinahópi hefur það legið fyrir að útrásarfurstarnir  voru að leika sér að þjóðinni með gervipeninga.  Það sem er ámælisvert er hversu yfirvöld hafa verið sofandi.  Nú ætlar ríkisstjórnin að bjarga Kaupþingi á Íslandi til að auka en frekar á erfiðleika þjóðfélagsins.  Hvað getum við gert?  Það er ekki hlustað á þegnana.  Hvað eru yfirvöld að hugsa með því að hafa stjórnendur bankanna en að störfum. Hvaða skynsemi er í því.


Stjórnvöld hafa niðurlægt þjóð sína með tómlæti.

Íslendingar eru duglegt fólk sem þarf og hefur þurft að vinna myrkrana á milli til að ná endum saman þó að stjórnmálamenn hreyki sér af því að Ísland sé fimmta ríkasta landið í heimi.  Gárungarnir segja að þeir sem eru við stjórnvölinn á Íslandi hugsi aðeins um eigin hag og afkomu sína. Ég ítreka en og aftur, við þurfum aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins strax í dag.


Látum hryðjuverkamennina og konurnar ekki sleppa úr landi.

Nú er mikilvægt að yfirvöld komi í veg fyrir að þau sem settu landið í þrot fari  ekki af landi brott.  Fréttir berast að einhverjir hafi nú þegar farið af landinu.

Bretar munu ekki sækja Ísland heim.

Bretar hafa verið duglegir að heimsækja Ísland.  Eftir atburði dagsins mun þeim sjálfsagt fækka verulega með ófyrirséðum afleiðingum.

Ítreka en og aftur, við þurfum á aðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.


Alþjóðagjaldeyrissjóðinn í þágu íslendinga, hvers vegna ekki? Hafa íslenskir stjórnmálamenn eitthvað að fela?

Það vekur athygli meðal þjóðarinnar hvers vegna ríkisstjórn íslands vill ekki þiggja aðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.  Að mati margra eru skýringar eftirfarandi:

Höfum eftirfarandi í huga.

1.  Stjórnmálamenn missa völdin um stundarsakir.

2.  Sérfræðingar Alþ.gjald.sjóðsins taka þjóðina í gjörgæslu.

3.  Þeir munu flétta ofan af þeirri hrikalegu spillingu sem ríkir hér á landi.

4.  Þeir munu skera fituna burt af íslensku stjórnkerfi.

5.  Við íslendingar munum í framhaldinu fá heilbrigt og réttlátara samfélag.

Góðir íslendingar, í Guðs bænum vaknið.


Gjaldþrota fólk elt í áraraðir, hvað með útrásarþotustjóranna sem hafa sett heila þjóð í galdþrot?

Það verður fróðlegt að fylgjast með útrásarfurstunum sem sett hafa þjóðina í þrot og  halda  síðan áfram í viðskiptum eins og ekkert hafi í skorist.  Búnir að koma heilli þjóð í gjaldþrot sem gæti verið einsdæmi í heiminum.  Þessir aðilar munu halda áfram með vísa og debitkortin sín og allt í fínu lagi.  Þeir hafa komið sér upp digrum sjóðum víða um heim og því mun þá aldrei skorta neitt.  Ekki verða þeir hundeltir af innheimtumönnum ríkisins.

Nú veit ég um nokkur dæmi þar sem fólk varð gjaldþrota og skuldaði eftir það m.a. í Landsbanka Íslands.  Talið var líklegt að þeir sem eignuðust Landsbanka Íslands fyrir nokkrum árum en eru búnir að tapa honum í dag hafi fengið auka afslátt vegna hugsanlegra útlánatapa á þeim tíma.  En hvað gerðu Landsbankamenn.  Þeir afskrifuðu gjaldþrotakröfur í bókum sínum en héldu samt áfram að elta fólk í gegnum Intrum sem er í eigu sömu aðila.  En þann dag í dag er þetta fólk hundelt af Intrum þótt mörg ár séu liðin frá gjaldþrotinu.

Mun ríkisvaldið hundelta þessa menn næsta áratuginn?

Ein saga:

Ung stúlka stofnaði fyrirtæki árið 1974 þá aðeins 19 ára gömul og var í raun frumkvöðull þess tíma.  Þessi stúlka var ætíð með rekstur sinn á eigin kennitölu og síðar einnig á kennitölu eiginmannsins.  Stúlkunni gekk vel í viðskiptum næstu 26 árin og hafði átt góð samskipti við sinn viðskiptabanka öll árin.  Á tímabili var stúlkan sem nú er orðin kona verið þegar mest var með 60 manns í vinnu.  Árið 1999 gerði hún stór mistök sem olli því að hún og eiginmaður hennar urðu gjaldþrota árið 2000.  Reksturinn var alla tíð á þeirra kennitölum og því voru þau með allt undir sem ekki átti að koma að sök þar sem allt hafði gengið svo vel.

En slysin verða og nú stóðu hjónin uppi gjaldþrota en sem betur fer heil heilsu.  Í dag eru átta ár síðan og enn eru þau hundelt og mega ekkert eiga.  Það er ótrúlegt hversu lengi má halda fólki í snörunni og því er það líka óskiljanlegt að lög hafi ekki verið sett í landinu þar sem kveðið er á um að fimm árum eftir gjaldþrot get fólk um frjálst höfuð strokið, byrjað á núlli og tekið á fullu þátt í þjóðfélaginu. 

Staða fólks er mismunandi eftir gjaldþrot, en allir upplifa þvílíkar sorgir. martraðir, niðurlægjingu og skömm í áraraðir svo fátt eitt sé nefnt.  Sumir eiga góða að sem hjálpa viðkomandi að komast á ról aftur.  Slík hjálp er góðra gjalda verð, en það að geta ekki látið ljós sitt skína í sínum viðskiptum sökum gjaldþrots  fyrir mörgum árum tekur verulega á.  Í hópi gjaldþrota fólks er um mikinn mannauð að ræða sem hvert þjóðfélag þarf á að halda.

Fjöldi fjölskyldna býr við sára fátækt hér á Íslandi sökum gjaldþrota.  Þetta fólk býr við einangrun, fælni við annað fólk og mikið þunglyndi.  Börnin í þessum fjölskyldum þjást gífurlega.  Margir hafa tekið eigið líf og skilið ástvini sína eftir í  enn verra ástandi og enn meiri sorg.

Ég hvet alþingismenn þjóðarinnar til að taka á þessu máli og losa fólk úr snúrunni, því þessir einstaklingar hafa svo sannarlega tekið út sína refsingu.

 

 

 


AF DUGNAÐI OG MYNDUGLEIKA, HVAÐ MEINAR RÁÐHERRANN ??????????????

Forsætisráðherra Íslands sagði í ávarpi sínu til þjóðarinnar að útrásarbankastjórarnir hafi unnið að miklum dugnaði og myndugleika.  Hvað á ráðherrann við.  Þeir sigldu þjóðinni á bólakaf í skuldafen sem við þjóðin þurfum nú að taka á okkur.  Eru menn ekki með réttu ráði?  Er ekki kominn tími til að stjórnin segi af sér? Hvað þarf að ganga langt?

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Samfélagið og við

Höfundur

Ásgerður Jóna Flosadóttir
Ásgerður Jóna Flosadóttir

          MBA viðskiptafræði, BA stjórnmálafræði og fjölmiðlafræði.  Er starfandi formaður Fjölskylduhjálpar Ísland

Okt. 2008
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Fjölsk mars 2008 008
  • Fjölsk mars 2008 005
  • PhotoImpression
  • Mars2008 019
  • Mars2008 019

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.10.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 72644

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband