Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
12.4.2010 | 18:58
Þurfum nýja sýn
Skýrslan er komin. Nú þurfum við íslendingar nýja sýn á umhverfið. Hver ætti sú sýn vera? Það getur ekki talist eðlilegt að þegar einstaklingar koma út úr skólakerfinu og ráða sig í störf innan stjórnsýslunnar að þeir starfi þar alla sína starfsævi. Slíkt fyrirkomulag er ávísun á spillingu. Ef ríkisstjórnin meinar það sem hún segir varðandi hreinsanir innan stjórnkerfisins eru eftirfarandi byrjunarskref í áttina að því.
1. þingmenn sem sitja á Alþingi íslandinga í dag og tengjast efnahagshruninu og eða eru kúlulánþegar segi af sér þingmennsku og varamenn taki við.
2. Setja ætti í lög um að kjörnir þingmenn geti lengst setið á þingi í tvö kjörtímabil í senn og færu þá til starfa innan einkageirans.
3. Eftir fjögur ár í störfum hjá einkageiranum gætu þeir( fyrrum þingmenn) boðið sig fram aftur ef þeir kjósa svo.
4. Setja þarf ný lög um embættismenn og stjórnendur innan stjórnkerfisins.
5. Embættismenn og stjórnendur innan stjórnkerfisins verði ráðnir til fimm ára og fari síðan út í einkageirann og starfi þar næstu fimm árin. Eftir þann tíma geta þeir sótt um störf innan stjórnsýslunnar ef áhugi er fyrir hendi.
Breytingar sem þessar gætu komið að einhverju leiti í veg fyrir áframhaldandi spillingu sem ríkt hefur hér á landi og ekki sér fyrir endann á.
Tilmæli til stjórnmálaflokkanna. Takið ykkur tak og skiptið út fólki og hleypið nýju blóði að.
9.9.2009 | 18:51
Fjölskylduhjálp Íslands upplýsingaveita fyrir erlenda fjölmiðla
Þing og ráðherrar spari | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.9.2009 | 09:55
Steingrímur Jóhann, vaknaður.
Upplausn hér verði Icesavelögum hafnað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.8.2009 | 15:00
Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður mjög hæfur til starfans.
11 sóttu um saksóknaraembætti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.8.2009 | 09:48
Eftirlitsstofnanir, hvar voru þær?
Skulduðu yfir þúsund milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.8.2009 | 11:09
Ráðherrabílar óþarfir í 300 þúsund manna samfélagi.
Ég hef oft velt því fyrir mér hvers vegna ráðherra hafa bíl og bílstjóra til að keyra sér á milli staða. Mér hefur fundist þetta hálf hlægilegt fyrirbæri í okkar litla samfélagi. Ráðherrar geta ekið sjálfir á milli staða á eigin bílum. Þeir eiga að geta lagt hvar sem er þó ekki með því að skapa hættu í umferðinni. Þeir gætu verið með merki í glugga bílsins líkt og öryrkjar nema þar stæði ráðherra. Hættum þessum flottræfilshætti og spörum í leiðinni. Margt smátt gerir eitt stórt.
18.8.2009 | 11:18
Jóhanna og Steingrímur, nú takið þið í taumana og afnemið þennan gjörning eða látið af störfum.
Ég trúir því ekki að félagshyggjustjórnin láti þetta viðgangast. Skilanefnd bankans er vanhæf. Maður vaknar með óbragð í munninum á hverjum morgni. Það er farið með okkur þegnana eins og eitthvert rusl, afgangsstærðir. Við megum kveljast andlega vegna hækkunar íbúðalána meðan ótrúlegar afskriftir eiga sér stað í bankakerfinu.
Gamli Landsbankinn afskrifar skuldir Magnúsar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.8.2009 | 10:09
Ég ek á bíl sem er árgerð 1996
Ég snattast um bæinn á Litlu Ljót sem er Póló árgerð 1996 og ætla mér ekki að selja hann ( bílinn). Ætla mér að keyra hann út. Litla Ljót fær skoðun á hverju ári en að sjálfsögðu held ég öllu við nema útlitið á henni er orðið frekar dapurt. Litla Ljót nýtist mér vel á milli staða í borginni og svo eyðir hún eins og saumavél.
Samdrátturinn 75,68% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.8.2009 | 11:18
Ljós í myrkrinu
Ánægjulegar fréttir berast frá Blönduósi þar sem möguleikar eru á því að Greenstone reisi risastórt gagnaver. Mjög jákvæðar frétti. Tvö þúsund einstaklingar hverfa þá af atvinnuleysisskrá.
Talið líklegast að risavaxið gagnaver rísi á Blönduósi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Samfélagið og við
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar