Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
7.9.2008 | 18:01
Þurfum erlenda efnahags sérfræðiráðgjöf
Fólk er miður sín yfir þeim fréttum sem berast daglega frá yfirvöldum og fjármálageirum á Íslandi. Oft höfum við vinahópurinn talað um að Ísland þurfi á erlendum efnahagsráðgjöfum að halda því okkar menn eru ekki færir um að ráða fram úr hinum gríðarlega vanda sem íslenskt þjóðfélag stendur frammi fyrir. Vonandi munu stjórnvöld fara eftir tilmælum Ólafs Ísleifssonar hagfræðings og lektor við Háskólann í Reykjavík sem fram komu í Fréttablaðinu 6. september s.l. þess efnis að Seðlabankinn leiti eftir sérfræðiráðgjöf erlendra aðila á borð við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Með von um að stjórnvöld sjái ljósið.
5.9.2008 | 14:46
Ríkisstjórnin segi af sér og það strax.
23.8.2008 | 22:38
MBA nemar á Hótel Hamri Borgarnesi
Var að koma heim frá því að dvelja á fyrirlestrum á Hótel Hamri í Borgarnesi. Fyrsti dagur minn í MBA námi við Háskóla Íslands. þetta er 25 manna hópur sem saman stendur af 20 körlum og 5 konum sem öll eru yndislegir einstaklingar sem ég hlakka til að vinna verkefni með næstu tvö árin. MBA nám við Háskóla Íslands kostar 2.7 miljónir, svo málið er ekkert grín.
Dagurinn byrjaði á því að við sem hefjum MBA nám í dag hittumst í Hringstofu á Háskólatorgi þar sem forseti Viðskiptafræðideildar HÍ Ingjaldur Hannibalsson bauð nema velkomna og sýndi þau húsakynni sem við munum dvelja mikið í næstu 20 mánuðina. Húsakynnin eru glæsileg og mikil breyting frá því að ég var síðast við nám í HÍ.
Því næst var farið með rútu upp í Borgarnes þar sem okkar fyrsti fyrirlestur fór fram.
Fyrirlesarar voru ekki af verri endanum. Þeir voru Jón Snorri Snorrason forstöðumaður MBA námsins, Gylfi Magnússon dósent, Þórhallur Örn Guðlausson dósent, Árelía E. Guðmundsdóttir lektor, Ester Rós Gústavsdóttir verkefnisstjóri MBA námsins, Einar Guðbjartsson dósent og Gylfi Dalmann Aðalsteinsson dósent.
Eftir fyrirlestrana var boðið upp á fordrykk og síðan yndislegan kvöldverð með öllu tilheyrandi.
Við komum til Reykjavíkur eftir mjög svo ánægjulega ferð um hálf níu og nú bíður okkur lestur á 400 bls. fyrir næsta mánudag.
Menningarnóttin fer fram hjá mér þetta árið.
17.8.2008 | 18:06
VANN/ UNNU 65 MILLJÓNIR Í LOTTO
Mikið samgleðst ég þeim er unnu stóra pottinn hjá Lotto s.l. laugardag. Vona ég svo innilega að það sé öryrki eða einhver sem hefur verið efnalítill allt sitt líf.
17.8.2008 | 16:51
Komin heim.
Stykkishólmur er fallegur bær á skemmtilegu bæjarstæði með frábæru útsýni yfir Breiðafjörðinn. Hafði komið síðast í Hólminn sem barn, var því að upplifa staðinn upp á nýtt.
Við komum inn í bæinn í yndislegu veðri og blankalogni. Öll tjaldstæði voru full og þegar leið á kvöldið fylltist hafnarbakkinn af fólki mest unglingar og tónlistin tók öll völd.
Ákveðið var að gista ekki á staðnum heldur keyra heim. Lögreglan stóð vaktina og er við nálguðumst Borgarnes birtist blikkandi lögreglubíll skyndilega í myrkrinu, hvaðan hann kom veit ég ekki, hlýtur að hafa legið í leyni. Gott mál. Við stöðvuðum og bóndinn var láta blása og út kom að hann hafði drukkið kók allt kvöldið. Lögreglan sló á létta strengi og við kvöddumst. Mikið er ég ánægð með störf lögreglunnar.
Eitt var það sem vakti athygli mína er hversu vel merktur vegurinn er yfir Kerlingarskarð þar sem við vorum á ferðinni að nóttu til var frábært að sjá glitstikur þétt settar báðu megin alla leiðina yfir skarðið. Frábært hjá Vegagerðinni.
16.8.2008 | 16:16
Stykkishólmur here I come.
Jæja, þá er verið að taka sig til og ferðinni er heitið vestur í Stykkishólm á danska daga og njóta þeirra fjölmörgu uppákoma sem svæðið býður upp á. Í kvöld verður þeirra fræga bryggjuball þar sem maður fær sér snúning nema hvað. Okkur hjónunum stendur til boða að sofa í tveggja herbergja tjaldvagni sem vinafólk okkar er með. Ekki vantar huggulegheitin. Farið er með tvennt í huga. Í fyrsta laga að njóta þess að vera á staðnum og í öðru lagi að styrkja bæjarfélagið með því að eyða nokkrum krónum á svæðinu því uppákomur eins og danskir dagar færir bæjarfélaginu þó nokkra búbót. Með því að heimsækja hinar ýmsu uppákomur út um land er maður að efla efnahag viðkomandi svæðis.
Vona að hann haldist þurr.
15.8.2008 | 20:41
Hvar eru hugsjónir stjórnmálamanna í Reykjavík?
Einstaklingar fara út í stjórnmál vegna hugsjóna sinna og til að hafa áhrif til framfara í samfélaginu. Hvar eru hugsjónir stjórnmálamanna í Reykjavík? Spyr sú sem ekki veit og svari þeir sem til þekkja.
15.8.2008 | 19:23
Borgarstjóraefni Frjálslynda flokksins komið fram á sjónarsviðið.
Undanfarna daga hafa konur í Fjölskylduhjálp Íslands staðið á haus við að þrífa, flokka og taka til og vil ég þá sérstaklega nefna þær sómakonur Rögnu og Lillý sem hafa unnið þrekvirki fyrir opnunina og færi ég þeim mínar bestu þakkir fyrir. Á morgun byrjum við að úthluta matvælum til þeirra sem minna mega sín hér á Íslandi. Eins og svo oft hefur komið fram þá vinna allir hjá Fjölskylduhjálp Íslands í sjálfboðavinnu og af hugsjón. Þið sem búið svo vel að eiga matvæli , föt, leikföng og búsáhöld aflögu þá tökum við á móti alla miðvikudaga frá kl: 13.00 til 17.00 að Eskihlið 2 - 4.
Sælla er að gefa en þiggja.
28.7.2008 | 14:14
Ísland fegursta land í heimi.
Komin heim eftir ánægjulegt ferðalag um Austfirðina. Keyrði hátt í 2000 kílómetra í ferðinni. Ísland er fallegasta land í heimi, þvílík náttúrufegurð, með tignarlegum háum fjöllum svo unun er á að horfa. Byrjuðum á að stoppa í Skaftarfelli sem er undraheimur út af fyrir sig með Vatnajökulsþjóðgarðinn í bakgarði sínum. Þvílík upplifun að bregða sér út úr bílnum og á örskammri stundu stendur maður á Vatnajökli.
Skoðuðum Jökulsárlón, hafði siglt á því fyrir nokkrum árum, þvílík ólýsanleg fegurð. Höfn í Hornafirði er alltaf vinalegur staður heim að sækja með frábæran humar. Djúpivogur er sorglega fámennur staður en á afskaplega fallegu bæjarstæði.
Stöðvafjörður var næstur sem er þvílíkur svefnbær en fólkinu líður þar vel og stendur þorpið á undurfögrum stað.
Þá var Fáskrúðsfjörður næstur, að keyra inn fjörðinn er engu öðru líkt, þvílík náttúrufegurð. Franskir dagar voru á fullu sem ég tók að fullu þátt í og hafði mikla ánægju af. Yfir bládaginn nýtti ég tímann og fór til Reyðarfjarðar í gegnum hin frægu göng sem liggja á milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar. Mikið fallegur bær þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað. Skoðuðum álverið og fleira.
Fórum því næst til Egilsstaða þar sólin skein og fallegt mannlíf blasti við. Sátum í 25 stiga hita og glampasólskyni. Á Egilsstöðum er margt að sjá og engin svikin á að heimsækja þann stað.
Því næst var haldið í Hallormsstaðaskóg og sú ferð var líkust því að keyra um svissnesku alpana fyrir þá sem það hafa prófað. Gríðarlega vel heppnuð skógrækt. Atlavík var næst á dagskrá, brjálæðislega fallegt umhverfi og þar nutum við þess að fara út á Lagarfljót á hjólabát og njóta þeirrar draumaveraldar sem þar blasir við, engan orminn sáum við.
Heim er ég komin alsæl með ferðina.
Um bloggið
Samfélagið og við
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar